Árangur og kostnaðaraðhald með Tímon
// Ferðaþjónusta
Þar sem mikil sveifla getur verið í fjölda starfsmanna eftir árstíðum er mikilvægt að hafa góðri yfirsýn og geta brugðist við örum breytingum á einfaldan hátt. Þau atriði sem ferðaþjónustan nýtir sér einkum er skipulag vakta í vaktakerfi Tímon og utanumhald um sveigjanlegan vinnutíma starfsmanna.
Tímon kemur til móts við ferðaþjónustuna á ýmsan hátt og hafa nýjungar sprottið fram sem styðja vel við þarfir hennar. Dæmi um lausnir sem ferðaþjónustan hefur nýtt sér eru meðal annars að leiðsögumenn geta stimplað sig á ákveðna ferð og Tímon sér um allan útreikning samkvæmt kjarasamningi Félags leiðsögumanna.
Nota lausnir:
Tímaskráning, Viðvera og Vaktaplan
Dæmi um viðskiptavini:
Center Hotels, Íslenskir Fjallaleiðsögumenn og Eskimo Travel
- Vaktaplan
- Mönnun vakta með tilliti til bókunar
- Hentar vel fyrir dreifða starfssemi
- Kjarasamningar, tímakaupsútreikningar
- Mikil starfsmannavelta
// Þjónusta
Fyrirtæki sem eru í þjónustugeiranum eru að nýta sér skráningu á verk og viðveru. Þar er mikið um blandaðar lausnir, starfsfólk á föstum mánaðarlaunum þar sem viðvera og fjarveruskráning eru lykilatriði. Aðrir eru með hóp verktaka á tímakaupi og umsýslu vaktavinnu. Tímon er sveigjanlegt og styður á auðveldan hátt við mismunandi þarfir.
Nota lausnir:
Viðveru, Tímaskráning, Verkskráning, Vaktaplan, Mötuneyti
Dæmi um viðskiptavini:
Sýn, Eimskip og Félagsstofnun Stúdenta.
- Fylgjast með viðveru og fjarveru.
- Skipuleggja orlof starfsfólks.
- Skrá þjónustubeiðnir frá viðskiptavinum eða innanhúss.
- Tól fyrir mannauðsstjóra til að fylgjast með þróun veikinda, veikindarétt, orlofsréttindi og starfsmannaveltu.
- Úttektir starfsfólks beint til launa.
// Sveitarfélög / Stofnanir
Sveitarfélög eru öflugir Tímon notendur. Þau eru með mikið flækjustig launaútreikninga og ólíka hópa starfsfólks. Þar reynir á vaktavinnu, vaktahvata, útköll, hvíldarákvæði og frítökuréttindi, allt sem Tímon heldur utan um og léttir vinnu launadeildar. Gott samstarf hefur leitt af sér endurbætur í lausninni sem hentar sveitarfélögum mjög vel.
Nota lausnir:
Tímaskráning, Vaktaplan, Viðvera
Dæmi um viðskiptavini:
Seltjarnarnes, Hveragerði, Hörgársveit og Eyjafjarðarsveit
- Keyra til launa
- Skipuleggja vaktir
- Keyra inn vinnuramma kennara, forfallakennsla
- Hvíldarútreikningar, frítaka, álagsútreikningar
- Vaktahvati
- Mikið um hlutastörf og utanumhald þessa
- Starfsmenn í tveimur störfum